|
Helga systir & bumbukrílið :)
|
06.02.2008 17:09:59 / rrgogga
Ég hef ákveðið að hætta með þessa BlogCentral síðu, þar sem hún er oft biluð og hef fært mig á www.raggagogga.com þar sem ég sameina bæði þessa síðu og moggablogsíðuna mína...sjáumst þar Ragga Gogga
»
28.01.2008 15:10:56 / rrgogga
Jæja það hlaut að koma að því... peysurnar sem Agnes vinkona var að selja á sínum tíma eru komnar aftur, þessar peysur svoleiðis ruku út & Agnes hafði hreinlega ekki undan að selja.. svo vinsælar voru þær... nú er enn meiri verðlækkun & verðið hreinlega brandari... nú fer hver að verða síðastur... kíkið á : http://www.lesliehall.com/8-sweaters2.html Þar sem Agnes er í skóla þá hef ég verið dugleg að kaupa af henni peysur á slikk & vekja þær athygli hvert sem ég fer... endilega sendið henni e-mail á agnes@peysa.is & styrkið stelpuna... það vantar ekki vandvirknina í þessar æðislegu peysur... frænka hennar Agnesar ( sem situr fyrir á myndunum ) er líka alveg frábær í þessum sí-vinsælu peysum !!! Hahahahahahahaha Mbk Ragga Gogga
»
27.01.2008 15:50:05 / rrgogga
Ekki liðin vika frá síðustu færslu & ég er strax komin með nýja... ( er alveg að bæta mig )... Núna á þessu augnabliki er hálfleikur í úrslitaleik Dana & Króatiu... Danirnir eru yfir 13-10, þetta er hörku leikur & grunar mig að hann verði mun hörkulegri í seinni hálfleik... ég held með Króatiu & vona ég svo sannarlega að þeir vinni , samkvæmt minni bestu vitund hafa þeir aldrei orðið Evrópumeistarar.. flestir hérna heima halda með Dönunum en ekki ég ( sorry Sigga mín )... Af öðru er allt við það sama, alltaf sama blíðan úti & allir í þessu líka stuðinu... helgin er búin að vera mjög róleg & kósý... við tókum bara vídeospólur í gær ... ( ég sofnaði reyndar yfir seinni myndinni en Ingi kláraði...) Ég held að leikurinn sé að byrja aftur... Bið að heilsa Ragga Gogga...
»
22.01.2008 17:32:56 / rrgogga
Ja-há... gleðilegt árið... ég ætla nú ekki að byrja færsluna á því að afsaka hitt & þetta ( þá á ég við bloggletina..) af mér & mínum er allt gott að frétta... jólin & áramótin voru æði & sömuleiðis þrettándinn !!! nú eins & hjá mörgum þá hafa þetta verið frekar rólegar vikur, lítið að gerast, við Ingi fórum á ársátíð hjá Lax-á um síðustu helgi & heppnaðist hún svona ljómandi vel... Það sem helst á athygli mína þessa dagana er handboltinn ( Ísland-Þýskaland leikurinn var að klárast ) ég finn svo til með mínum mönnum þarna úti, þetta eru svo ótrúlegir naglar en þeir hafa einhvernveginn ekki alveg náð sér á strik... ég hef alveg ótrúlega trú á þeim & bara vona að næstu tveir leikir fari vel !!! áfram Ísland !!!! í blíðu & stríðu auðvitað !!!! Nú fer að styttast í að Helga sæta systir mín & Eyþór sæti mágur minn fara að eignast litla Röggu kútinn, það er mánuður í að fjörkálfurinn komi í heiminn, ég er að farast úr spenningi...! Þokkalega færslan... hahahahahaha en í smíðum er ný bloggsíða ( því ég hef ekki undan að skrifa inn á þessa... ) hún kemur í ljós mjög bráðlega... ( alvöru dæmi sko ) Hilsen bilsen Ragga gogga...
»
07.12.2007 08:24:15 / rrgogga
Hahahahahaha þetta fer mér bara ágætlega... Ragga ritstífla er málið !! Helga systir hringdi í mig í gær & tjáði mér það að hún nennti ekki lengur að fara inn á síðuna mína ( því að ég væri svo léleg að blogga) hún sagði einnig að hún væri komin með "næmuna" fyrir þessari Danmerkur ferð sem við Agnes fórum í því hún væri búin að lesa færsluna svo oft.. hahahahaha Helga þú ert æði !! Af okkur er allt gott að frétta, Ingi Freyr fór í fyrsta prófið í gær & fer í síðasta prófið 20 des... Mamma & Helga koma á morgun í svona jólaferð, Helga fer svo á tónleika með Bjögga Halldórs sem Hrafnhildur frænka bauð henni á ( þær frænkurnar verða þar alveg klárlega í banastuði )... Annars eru bara jólin að koma, ég var búin að skreyta allt fyrir 1 des, allt rosalega kósý, allar seríurnar & svona... Á morgun er póker... þá takast á : Ragga-Gunni-Atli-Aníta-mamma & Helga... svaka spennandi !!! (var ég ekki örugglega búin að taka það fram að ég vann síðast ) hahaha!!! Jæja jólakveðja Ragga Gogga... http://raggagogga.blog.is/blog/raggagogga/
»
27.11.2007 11:20:29 / rrgogga
Þetta er ekki alveg að ganga... ( þetta bloggleysi sko..) við Agnes erum jú komnar heim frá Danska landinu, ferðin í heild var alveg mögnuð, afmælið hennar Siggu ógeðslega skemmtilegt & við píurnar langt í frá að vera edrú... það var svo margt skemmtilegt sem gerðist í ferðinni, við Agnes misstum t.d næstum því af vélinni heim, það munaði einhverjum 2 mín... þeir voru að loka þegar við komum, það gláptu allir á okkur í vélinni... ( örugglega hugsandi með sér hverslags slúbbertar við værum ) en Sigga & Siggi takk enn & aftur fyrir okkur, ég er ennþá að hugsa um hamborgarahrygginn sem þið elduðu á laugardeginum !!! djö.... var þetta góður matur !!! Annars gengur allt sinn vanagang, er á fullu að lesa bókina eftir Hrafn vin minn Jökulsson, bókin sem heitir Þar sem vegurinn endar er algjör snilld, ég hafði hugsað mér að hafa hana sem jólabókina í ár en ég gat hreinlega ekki beðið... skemmtilegar frásagnir & alveg virkilega vel skrifuð bók ( sem kemur mér auðvitað ekki á óvart þar sem Hrafn á í hlut ) jólabókin í ár !!! Á föstudaginn fór ég á staffadjamm með vinnunni, kíkti svo aðeins í bæinn til þess að hitta Kristjón vin minn, Gunnar bróðir hans & Rósu vinkonu, fór síðan bara heim þegar kúturinn á heimilinu var búin að læra ( litli er nefnilega í próflestri & þá er bara happa-glappa hvort maður rekist á hann Allavega gaman að koma með smá færslu... mbk Ragga Gogga..
»
13.11.2007 11:12:05 / rrgogga
Við pæjurnar leggjum í hann í nótt, Ingi Freyr hefur hlotið heiðurinn að fá að skutla okkur & sækja!!! ( mjög eftirsóknarvert hlutverk, þó að honum finnist það ekki ) en við vinkonurnar erum orðnar þvílíkt spenntar að hitta Siggu & fjölskyldu & skoða Danska landið... Bloggið mitt er semsagt komið í pásu fram yfir helgi, þið hafið það bara gott þangað til eins & við  Ferðakveðja Ragga Gogga & Agnes...
»
09.11.2007 09:48:34 / rrgogga
Auðvitað kem ég með netta færslu áður en við Agnes förum til DK... ( ef ekki bara tvær færslur ) lífið gengur bara sinn vanagang, gengur mjög vel að mála & allt í þokkalegum blóma... um síðustu helgi var auðvitað spilaður póker, reyndar færðum við okkur aðeins um set, í stað þess að spila á Hringbrautinni þá spiluðum við heima hjá Hildi & Svan & Gunni var krýndur sigurvegari kvöldsins... ég lenti hinsvegar í öðru sæti ( enn eins & Kiddi bróðir sagði þegar ég sagði honum hvernig fór : Ragga, það man engin eftir öðru sætinu... ) þannig að reyni bara að vinna næst, þannig að munað verði eftir mér það er nú líka gaman að segja frá því að Atli Björn datt fyrstur út !! hahahahahahahaha... þetta man maður !!! Í kvöld er smá teiti hjá Sigga bróðir hans Inga, auðvitað mætum við þangað, veit samt ekki hvort maður kíkir eitthvað í bæinn á eftir.. það verður bara að koma í ljós !!! Jæja færslan er orðin ansi löng... Agnes mín, til hamingju með daginn í gær & Bergey mín til hamingju með daginn í dag !!! Sigga, við hlökkum til að sjá ykkur !!!! Mbk Ragga Gogga...
»
26.10.2007 08:54:40 / rrgogga
Þá er komið að því að skrifa nokkrar línur... það er auðvitað allt gott að frétta, við Agnes erum að fara til Danska landsins þann 14 nóv... við ætlum að vera eina nótt í Köben & fara svo til Siggu vinkonu okkar sem býr í Odense ( Óðinsvéum ) Sigga Inga verður nefnalega þrítug þann 17 nóv & ætlum við Agnes því að drífa okkur út !!!! ( við erum orðnar þvílíkt spenntar ) Á morgun er Ingi að útskrifast & í því tilefni förum við út að borða ( hann er ekkert að nenna einhverju veislu dóti )... hahahahahaha ekta hann  Ég held að ég sé ekkert með neitt meira til að segja frá nema að það styttist í jólin & þá fer mín aldeilis í stuð !!! ( ég hreinlega elska þennan tíma sem kallast jólaundirbúningur ) Mbk Ragga Gogga.. Ps. Helga systir er komin með síðu fyrir krúttið í mallanum http://www.draumakrutt.barnaland.is/ endilega kíkið !!!
»
16.10.2007 12:49:52 / rrgogga
Gengur hægt en ég er að taka mig saman í andlitinu... ég henti inn nokkrum málverkamyndum... http://raggagogga.blog.is/blog/raggagogga/ þarna kemur það svo greinilega í ljós hvað ég er sjúklega lélegur ljósmyndari !!!! Kem jafnvel með nýja færslu í kvöld mbk Ragga Gogga...
»
28.09.2007 21:27:39 / rrgogga
Jæja loksins komin örlítil bloggfærsla... það er nú gaman að segja frá því að ég er orðin meðlimur & eigandi Pókerklúbbs ásamt Inga, Gunna & Atla Birni... Pókerklúbburinn okkar hefur fengið nafnið All in ehf. meðlimir klúbbsins hittast einu sinni í viku ( á laugardagskvöldum ) & spila Texas Hold'em... það skemmtilega við þetta er að í hvert skipti má vera með einn gestameðlimur & eru menn þegar farnir að panta langt fram í tímann ( enda þrusu félagsskapur þarna á ferð ) ég mun vera með ferskar fréttir í hverri viku um stöðu mála um hver vinnur & þar fram eftir götunum!!! Annars af öðru, þá er allt gott að frétta, Helgu systir gengur bara þrusu vel á meðgöngunni, hún er komin 4 mánuði & 3 vikur á leið & litli kúturinn hennar Hrabbýjar dafnar alveg rosalega vel einnig er Sæbjörg & Siggi líka búin að eignast lítinn prins & Hafþór Logi orðinn svona líka stóri bróðir  Jæja þið verðið í bandi ef ykkur langar til að vera gestaspilari einhvern laugardaginn hjá All in ehf. Góða helgi...Ragga Gogga
»
26.09.2007 10:39:52 / rrgogga
http://blog.central.is/ehansen það er ekkert grín hvað hún Elín tengdamóðir mín er klár í höndunum !!!
»
17.09.2007 23:24:58 / rrgogga
Þá er maður komin heim í bæinn eftir magnaða helgi fyrir norðan... við ásamt öllum hinum frá Geitaskarði ( tengdafólkinu mínu ) Helgu systir, Eyþóri & mömmu gistum í veiðihúsinu við Blöndu. Skrapatunguréttirnar gengu svona rosalega vel... ógeðslega gaman eins & vanalega & vil ég því þakka öllu yndislega fólkinu sem var með okkur fyrir frábæra helgi !!! Svo heldur fjörið bara áfram um næstu helgi því að við Ingi erum að fara á Hótel Rangá í gistingu með 3 rétta máltíð & morgunmverði... það verður magnað  Jæja gott í bili mbk Ragga Gogga...
»
12.09.2007 10:15:27 / rrgogga
Það er gaman að segja frá því að Hrabbý frænka er búin að eignast lítinn prins ( Dóri var auðvitað að eignast hann líka ) litli molinn er gull fallegur !!! endilega kíkið á http://www.halldorsson.barnaland.is/ hann kom í heiminn þann 23 ágúst & er algjört æði !!! Lykilorðið á síðuna hans er myndform (ég mátti setja það hérna inn ) Mbk Ragga Gogga...
»
05.09.2007 11:31:55 / rrgogga
Þá er maður komin heim úr veiðiferðinni, þessi ferð var hrein & bein snilld !!! pæan ég veiddi auðvitað tvo laxa, Ingi reyndar setti í Maríulaxinn minn sem ég svo landaði sjálf, hérna sjáið þið þegar ég þurfti að drepa greyið laxinn... síðar um kvöldið þurfti ég svo að bíta veiðiuggann af, þetta var þvílík athöfn í kringum þetta þar sem ég þurfti að drekka það ógeðslegasta brennivín sem ég hef nokkurntímann smakkað !!! en fyrir vikið er ég orðin alvöru veiðimaður... & það stóðst því að daginn eftir þá setti ég sjálf í einn 4 punda ( mjög fallegann sko ) & landaði honum alein ( Ingi kom hvergi nálægt því nema að drepa hann, ég gat það ekki aftur ) þessi ferð var ógleymanleg, ég vil því þakka okkar frábæra veiðihóp fyrir meiriháttar skemtun ( Ragga, Ingi, Stebbi, Emmi, Bragi & Helle ) veiðihópur númer eitt  Segjum þetta gott í bili mbk Ragga Gogga hunter...
»
Síður: 1 2 3 ... 11
|
|